2.7.2009 | 03:21
On the road again....
Jæja, búið að vera ansi margt á dagskrá síðustu daga og ekkert lát á viðburðum.
VIð byrjuðum á að aka til Indianapolis þar sem við skoðuðum bílabraut. Já ég veit, bílabraut! En það var bara býsna skemmtilegt. Þetta er 100 ára gömul kappakstursbraut og alveg geysilega stór. Við ókum hring í rútu og skoðuðum svæðið, settumst á múrsteinana sem tilheyra upprunalegu brautinni og fræddumst um sögu kappakstursins. Sáum elsta Benzinn sem er frá 1886! og bara miklu fleira... kannski segja myndir meira en orð....
Fórum á The Children's Museum í Indianapolis og skoðuðum m.a. risaeðlubein....fullt af risaeðlubeinum í USA..
Skelltum okkur svo til Chicago og röltum um á útimarkaði sem kallast "Taste of Chicago" og þar var hægt að smakka alls kyns mat og hlusta á lifandi tónlist...
...við sulluðum í vatni sem var svalandi í hitanum....
..hér erum við komin til Detroit og þetta er mjööög algeng sjón, fáninn alls staðar....
...Amish Country í Ohio er mitt uppáhald fram að þessu í ferðinni!! I love it. Sjáið Björn að póstleggja kort og Amish manninn í hestakerrunni.....
...ég meina það, sveitin er dásamlega falleg og húsin og akrarnir.......
..og svo auðvitað Niagara fossarnir.......
Jæja, í bólið og svo keyra ca. 900 km á morgun....bara klikkun.....
26.6.2009 | 04:10
Seinni hluti að hefjast ..
Þá er ferðalagið hálfnað! Svona líður tíminn auðvitað hratt. En við erum búin að gera heilmargt og eigum eflaust margt skemmtilegt eftir.
Ég get ekki annað gert en dáðst að Simma fyrir að keyra bílinn sem við erum á, og er frekar stór, alla leið inn í botn á Manhattan - en þangað fórum við til þess að skoða frelsisstyttuna frægu. Þegar á hólminn var komið nenntum við ekki að taka ferjuna út í eyju en dáðumst að henni í fjarlægð. Löbbuðum svo inn að staðnum sem turnarnir stóðu og það er alveg ótrúlegt að sjá og upplifa, ganga eftir götunni sem svo margar myndir sýna í rykskýi. Veðrið hélst gott á meðan við röltum um en þegar við vorum að keyra til baka til að sjá Eiffelturnin fór að rigna líkt og hellt væri úr fötu og ég get alveg viðurkennt að taugarnar í mér voru ansi vel strekktar við að aka innan um gulu brjálæðingataxana í ausandi úrhelli um þröngar götur Manhattan - en við komumst til baka og náðum meira að segja að sjá Eiffel í þokunni hehe.
og svo ausandi rigning...minnti helst á íslenskt veður bara ...
Eftir New York ókum við til Washington og skoðuðum okkur um þar, gistum rétt fyrir utan borgina og ókum svo allan daginn þar á eftir til Kentucky. Þar gistum við í gamla húsinu hans Tryggva með Svandísi og co.
Erum búin að gera margt skemmtilegt, eins og t.d. fara á veðreiðar ...
auðvitað út að borða á skemmtilegum stöðum, fórum líka á sýninguna Bodies, sem sýnir mannslíkamann í nýju ljósi, to say the least! mjög áhugavert...
og einn hrollvekjandi atburður gerðist þegar Björn datt út í Ohio river af bakkanum og ekkert okkar tók eftir því!! svo kom þetta grey rennblautur til okkar, búinn að krafla sig upp á bakkann aftur, fór svo sem ekkert alveg í kaf en nóg til að þurfa að strippa niður á árbakkanum...
kallgreyið...
26.6.2009 | 03:40
Mr. and Mrs. Tryggvason
Frá vinstri: Jack, Mrs. Tryggvason (Jonna), Sarah, Tryggvi og Faith
Og loksins öll systkinin saman, fyrsta sinn í ...tja ca. 25 ár...
Efri röð: Pabbi, ég og Simmi, Janice og Helgi.
Neðri röð: Guðlaug, Jonna og Tryggvi, Svandís og Sigurjón. Vantaði bara Val manninn hennar Guðlaugar.
Það var nú ansi heitt þennan dag, dáist að Simma að hafa verið í fullum skrúða allan tímann.
Kökusneiðarnar okkar systra voru í stíl við fötin okkar, ferlega fyndið...
26.6.2009 | 03:22
On the road...
25.6.2009 | 02:23
Kentucky - Indiana
Jæja síðustu dagar hafa verið viðburðarríkir og feikilega skemmtilegir. Hins vegar hef ég ekki verið í neinu almennilegu tölvusambandi og því ekki sett neitt hérna inn vegna þess.
Á morgun höldum við ferðinni áfram, erum búin að vera í Kentucky/Indiana í tæpa viku og förum svo að fikra okkur til Maine.
Nú er svo tími minn búinn í tölvunni þannig að þetta verður ekkert lengra í bili...svaka blogg mar....
15.6.2009 | 03:24
Boston
Eftir 15 tíma ferðalag úr Háalundinum vorum við í teppalagðri lyftu á leið upp á herbergið okkar í Boston! Allt ferðalagið gekk ljómandi vel og allir glaðir. Eftir að hafa kastað mæðinni á herberginu fórum við á japanskt steikhús á hótelinu og fengum okkur sushi og teriaki kjúkling sem var eldaður á borðinu okkar með tilheyrandi hnífaglamri og eldglæringum - Björn sat stjarfur og fylgdist með víetnamska kokkinum elda núðlurnar hans fyrir framan hann hehe gaman að fylgjast með honum.
Á sunnudagsmorgninum sóttum við bílinn okkar næstu 3 vikurnar og lögðum af stað til New York. Stoppuðum þó í Province og borðuðum og nutum veðursins úti við. Þegar til New York var komið rúntuðum við aðeins inn í Bronx á meðan ákveðið var hvar næsti gististaður yrði. Enduðum á ágætis móteli í Hampton og ætlum að renna af stað til Washington DC á morgun.
Nenni ekki að hlaða inn myndum á þessu hæga neti sem ég er á núna - prófa kannski á morgun.
Tata.
24.4.2009 | 23:27
Friðrik V. á síðasta vetrardag
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 23:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.4.2009 | 22:43
Bílskúrshrollur
Í þau skipti sem við hjónin höfum hætt okkur inn í bílskúr í vetur, komum við hálf þunglynd til baka. Grínlaust, þá var rétt orðið hægt að smokra sér (með lagni nota bene) inn að frystikistunni og til baka og töldum við okkur heppin ef eitthvað hrundi ekki í gólfið í leiðinni. En sunnudagurinn var dagurinn sem við ruddumst með bjartsýni að vopni inn í skúr og löguðum til!
Sumardekkin voru sett undir bílinn og Björn tíndi til dót sem hann ætlaði að hafa til á tombólu í vor. Hann og vinur hans fóru reyndar út í Kaupang en sala var með eindæmum dræm svo þeir tóku saman aftur og það er spurning hvort þeir reyna aftur eða hvort við skutlum þessu í mæðrastyrksnefnd og/eða í gámana.

