Bílskúrshrollur

Í þau skipti sem við hjónin höfum hætt okkur inn í bílskúr í vetur, komum við hálf þunglynd til baka.  Grínlaust, þá var rétt orðið hægt að smokra sér (með lagni nota bene) inn að frystikistunni og til baka og töldum við okkur heppin ef eitthvað hrundi ekki í gólfið í leiðinni.  En sunnudagurinn var dagurinn sem við ruddumst með bjartsýni að vopni inn í skúr og löguðum til!
Sumardekkin voru sett undir bílinn og Björn tíndi til dót sem hann ætlaði að hafa til á tombólu í vor.  Hann og vinur hans fóru reyndar út í Kaupang en sala var með eindæmum dræm svo þeir tóku saman aftur og það er spurning hvort þeir reyna aftur eða hvort við skutlum þessu í mæðrastyrksnefnd og/eða í gámana.

Sumardekkin reddí

Safnarinn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband